Jól 2020Þyrluhjóladagur – Tvö flug, tvær leiðir
kr.27.900
Nú gefst einstakt tækifæri til að upplifa helibiking og kynnast hjólaleiðum í Hengli. Við hittum þig á ION Nesjavöllum, Norðurflug sér um að fljúga upp á topp og hægt að velja eina eða tvær ferðir. Ef þú velur tvær ferðir þá kynnistu tveimur leiðum – við förum ekki sömu leið tvisvar. Í Henglinum höfum við unnið að uppbyggingu fjallahjólaleiða í samstarfi við OR. Svæðið er falin perla sem hentar vönum fjallahjólurum.
Ein ferð á 16.900 og tvær ferðir á 27.900.
Þyrluhjóladagur Icebike og Norðurflugs var haldinn í fyrsta sinn sumarið 2020. Uppselt var og langur biðlisti – ekki missa af þínu plássi sumarið 2021.
Description
Hengilssvæðið er náttúruperla og það þarf að ganga um það sem slíkt. Þyrluhjólaferð er einstök upplifun og það er ógleymanlegt að fljúga yfir Hengilinn og sjá hann frá algjörlega nýju sjónarhorni. Að horfa á stíga sem þú hjólar niður skömmu síðar. Hengill hentar ekki byrjendum á fjallahjóli, við mælum með að byrja til dæmis í Heiðmörk, fara svo Jaðar og því næst að hjóla í Hengli.