Einstakt tækifæri til að prófað fulldempað raf-fjallahjól
Komdu með út að hjóla
- Information
- Location
- Gallery
- Reviews
What's included
Komdu og prófaðu raf fjallahjól á nýjum hjólaleiðum!
Sérsniðnar ferðir fyrir litla hópa í haust. Langar þig að kynnast – og/eða kynna vini og vinnufélagana fyrir fjallahjólreiðum? Tilvalið hópefli.
Ef þú hefur ekki fjallahjólað áður þá er þetta einstakt tækifæri til að kynnast nýju sporti, og fyrir þá þekkja til nú þegar þá er um að gera að kynna vini og vinnufélaga fyrir fjallahjólreiðum. Gaman upp og gaman niður! Fjallahjólreiðar sameina útivist, hreyfingu og skemmtun.
Ferðin byrjar og endar í Trailcenter Icebike Adventures á bílastæðinu við gönguleiðina í Reykjadal – við hliðina á Kaffihúsinu Reykjadal. Leiðsögumaður fer yfir lykilatriði og leiðir hópinn um stíga sem henta hópnum. Einn leiðsögumaður fylgir að hámarki 8 hjólurum – ef þið viljið skipta hóp upp í vanari og minna vana þá er það sjálfsagt. Allir hjóla stíga við hæfi.
Eftir hjólaferðina er tilvalið að fá sér heita súpu og svellkaldan öl á kaffihúsinu – og ef þig langar í auka skot af adrenalíni þá eru nágrannar okkar í Mega-Zipline með landsins lengstu sviflínu fyrir þá sem þora! Láttu okkur vita á info@icebikeadventures.com ef þig langar að vita meira!
FYRIRKOMULAG:
Lágmark 6 hjólarar og mest 18 saman. Hver ferð er sérsniðin að getustigi hóps og miðað við 1,5-2klst.
Ef einhverjir eiga sín eigin rafhjól þá koma þau frítt með svo lengi sem lágmarksfjölda er náð. Hjólin henta þeim sem eru 146cm – 205cm, undir 115 kg og í nógu góðu formi til að geta tekið td. létta fjallgöngu.
There are no comments yet.