Einstakt tækifæri til að prófað helibiking
Þú kemur með hjólVið komum með þyrluna
- Information
- Gallery
- Reviews
What's included
Skill and Fitness level:
Ferðin byrjar og endar í Trailcenter Icebike á bílastæðinu við gönguleiðina í Reykjadal – við hliðina á Kaffihúsinu Reykjadal sem verður með tilboð fyrir hjólara, súpa og bjór á 3.290. Greenhouse hotel býður 25% afslátt af gistingu með kóðanum “icebike2206“
Vertu með! Hjólum saman og eigum skemmtilegan dag í samfélagi fjallahjólara.
Verð: Ein ferð 19.500, hægt að taka tvö flug og hjóla tvær mismunandi leiðir.
Við byrjum að fljúga kl 11 og fljúgum til 15:00 Tryggðu þér sæti tímanlega til að missa ekki af þessu einstaka tækifæri til að prófa þyrluhjólaferð og hitta aðra fjallahjólara.
Ef bílastæðið í Reykjadal er fullt þá er hægt að hjóla frá Hveragerði eða hjá (fyrrum) íþróttahúsinu og hjóla stíginn meðfram hraun jaðrinum uppeftir til okkar.
FYRIRKOMULAG:
Þú velur tíma þegar þú bókar. Þyrlan flýgur með 5 manns í holli og leggur af stað þegar hún er full. Ekki hægt að panta nákvæma tímasetningu heldur þarf að mæta á staðinn nálægt þeim tíma sem þú bókar.
Starfsfólk Icebike Adventures og Norðurflugs sjá um að festa hjólin á þyrluna og lóðsa inn og út úr vél.
Allir gefa sig fram við starfsfólk hjá Trailcenter þegar mætt er á staðinn.
*** ef ekki verður hægt að fljúga vegna veðurs má velja endurgreiðslu ef ný dagsetning hentar ekki ***
There are no comments yet.