Nú gefst einstakt tækifæri til að upplifa helibiking og kynnast hjólaleiðum í Hengli. Við hittum þig á ION, Norðurflug sér um að fljúga upp á topp og hægt að velja eina eða tvær ferðir. Ef þú velur tvær ferðir þá kynnistu tveimur leiðum - við förum ekki sömu leið tvisvar. Í Henglinum höfum við unnið að uppbyggingu fjallahjólaleiða í samstarfi við OR. Svæðið er falin perla sem hentar vönum fjallahjólurum.